Lokað á skíðasvæðinu

Það er þyngra en tárum taki að tilkynna það að því miður verður skíðasvæðinu lokað frá og með deginum í dag 20.3.2020. Við munum að sjálfsögðu láta vita um leið og ástandið batnar og við fáum grænt ljós aftur til að opna, vonandi verður það á þessum vetri. En eins og flestir vita eru snjóalög með besta móti og því verður hægt með litlum fyrirvara að opna aftur batni ástandið í samfélaginu. Við munum taka helgina í að melta þetta ástand og funda á mánudaginn um framhaldið og verður göngubrautin tekin fyrir á þeim fundi.