Lokahóf Skíðafélags Dalvíkur.

Lokahóf fyrir 12 ára og yngri fer fram í Brekkuseli þriðjudaginn 27. maí nk. og hefst það kl. 17:00. Slegið verður á létta strengi, grillaðar pylsur og fleira. Verðlaunaafhending verður síðan fyrir Firmakeppnina og Nikulásarmótið. Farið verður í ratleik og því þarf að klæða sig eftir veðri. Upplýsingar um tíma á lokahófi fyrir 13 ára og eldri verða settar inn á skidalvik.is miðvikudaginn 28. Maí. Stjórn og foreldrafélag.