Lokahóf Skíðafélags Dalvíkur

Næstkomandi miðvikudag 3. maí verður lokahóf Skíðafélags Dalvíkur í Dalvíkurskóla kl.18:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir mót og góðan árangur. Einnig verða dregnir út lukkumiðar og að lokum verður öllum boðið í pylsugrill. Við hlökkum til að hitta ykkur Stjórn Skíðafélags Dalvíkur og foreldrafélagið