Meistaramóti 11-12 ára frestað.

Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur Meistaramóti í flokki 11-12 ára barna sem átti að fara fram í Bláfjöllum um næstu helgi verið frestað. Til stendur að halda mótið helgina 10.-11. mars Samhliða frestun á Meistaramóti tilkynnir skíðadeild Breiðabliks um frestun á Barnamóti sem fara átti fram samhliða Meistaramótinu og einnig munu fyrirhugaðar æfingabúðir frestast.