Ný heimasíða

Skíðafélag Dalvíkur hefur opnað nýja heimasíðu sem leysir eldri síðu félagsins af hólmi. Sú eldri fór í loftið árið 1998 og áttu þeir Sveinn Torfason og Stian Watn sem þá voru þjálfarar hjá félaginu allan heiðurinn að henni. Síðan sem er barn sins tíma hefur verið ótrúlega mikið notuð og sýnir að félögum er nauðsynlegt að hafa heimasíðu. Okkur þótti við hæfi að ný síða liti dagsins ljós nú því á árinu 2002, á ári fjallanna, eru liðin 30 ár frá stofnun Skíðafélags Dalvíkur og á því ári höldum við tóbakslaust Skíðalandsmót í samstarfi við Skíðafélag Ólafsfjarðar,en félögin hafa átt gott samstarf um mótahald stærri móta síðustu ár. Nýju síðunni er ætlað að veita upplýsingar um félagið og skíðasvæðið og var leitast við að hafa hana sem allra einfaldasta. Eftir er að bæta ýmsu inn s.s.upplýsingum um svæðið á fleiri tungumálum. Innan fárra daga verður sett upp vefmyndavél á svæðið sem á að senda nýjar myndir af svæðinu inn á síðuna a.m.k. tvisvar til þrisvar á dag. Með þessu verður hægt að kíkja á aðstæður séð frá Brekkuseli og fylgjast með veðri og vindum. Það var Gunnlaugur Jónsson Halldórssonar sem hefur séð um að gera þessa síðu að veruleika og þökkum við honum fyrir það. Það er von okkar að síðan verði góður upplýsingamiðill fyrir þá sem vilja fylgjast með starfi Skíðafélags Dalvíkur og afla sér upplýsinga um skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli.