OPIÐ FÖSTUDAG KL. 16-19
Nú er allt á fullu í undirbúningi fyrir opnun á skíðasvæðinu. Hópur fólks vinnur nú dag og nótt svo við getum opnað svæðið á morgun föstudag. Við ætlum að hafa svæðið opið kl. 16-19 og það verður frítt í lyfturnar þennan fyrsta opnunardag. Við hvetjum alla til að mæta á skíðum eða brettum og njóta vel.