17.11.2006
Eins og áður hefur komið fram er búið að opna skíðsavæðið og eru aðstæður orðnar ágætar. Á morgun laugardag verður opið frá kl. 13:00 til 16:00 og verður frítt í lyftur fyrir þá sem eru með árskort frá síðasta vetri. Á sunnudag verður opið frá kl. 12:00 til 16:00 en þá hefst sala lyftukorta.
Opnunartími næstu daga er frá kl. 16:00 til 19:00 mánudaga til fimmtudaga, lokað verður á föstudögum. Um helgar verður opið frá kl.12:00 til 16:00.
Þessi opnunartími getur breyst með stuttum fyrirvara.
Ef óskað er eftir öðrum opnunartímum til dæmis fyrir hópa þá bendum við á sarfsmenn svæðisins í síma 4661010 á opnunartíma eða Jón Halldórsson í síma 8618875.