01.12.2015
Þessa dagana eru starfsmenn skíðasvæðisins að undirbúa skíðasvæðið fyrir opnun. Síðustu daga hefur snjóað töluvert og þá hefur snjóframleiðsla með fimm snjóbyssum verið á fullu þegar aðstæður hafa verið fyrir hendi. Stefnt er að því að opna skíðasvæðið annað hvort föstudaginn 4. desember eða laugardaginn 5. Desember. Nánari upplýsingar verða settar hér inn á síðuna fimmtudagskvöldið 3. desember. Fyrst um sinn verður neðri lyftan opin.