25.03.2002
Skíðasvæðið á Dalvík verður opið um páskana frá kl. 10-17 nema laugardaginn 30. mars en þá verður opið frá kl. 10-21.
Hægt er að leigja allan útbúnað á staðnum. Boðið verður upp á ýmsar uppákomur yfir hátíðarnar. Farnar verða troðaraferðir upp undir fjallsbrún á Böggsstaðafjalli eftir því sem aðstæður leyfa. Troðaraferðirnar verða auglýstar nánar á staðnum. Lukkudýr Skíðafélagsins, hann Bjartur mun verða á svæðinu í tengslum við auglýsta viðburði og einnig verða Bakkabræður eitthvað á ferðinni. Troðin verður göngubraut í hólunum og einnig verður rudd göngubraut inn á Böggvisstaðadal ef veður og snjóalög leyfa. Auk þess sem hér hefur verið upp talið verður boðið upp á eftirfarandi dagskrárliði yfir páskana:
Fimmtudagurinn 28. mars - Skírdagur
Opnunartími: 10:00-17:00
10.30-11.45: Leikjatími fyrir öll börn fædd 1996 og síðar þar sem Bjartur verður meðal þátttakanda. Foreldrar er hvattir til að taka þátt í leiknum með börnunum.
11.00-15.00: Skátafélagið Landvættir býður upp á barnagæslu í fjallinu gegn vægu gjaldi. Fulltrúar Landvætta munu vera með ýmsar uppákomur fyrir börnin og tryggja að þeim leiðist ekki á meðan foreldrarnir taka létta spretti í brekkunum.
13.00-15.00: Boðið verður upp á einkakennslu fyrir byrjendur á skíðum gegn gjaldi. Nánari upplýsingar í Brekkuseli.
15.00: Sr. Magnús G. Gunnarsson flytur stutta hugvekju - Slökkt verður á lyftunum á meðan á hugvekjunni stendur.
Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina verður uppi allan daginn!!!
Föstudagurinn 29. mars - Föstudagurinn langi
Opnunartími: 10:00-17:00
Engin formleg dagskrá, þetta er rétti dagurinn fyrir fjölskylduna til að bregða sér í fjallið og búa til sína eigin dagskrá með kakó í brúsa og bananabrauð. Að sjálfsögðu munum við gera okkar besta til að tryggja gott skíðafæri og veður á þessum degi líkt og öðrum.
Laugardagurinn 30. mars
Opnunartími: 10:00-21:00
10.30-11.45: Leikjatími fyrir öll börn fædd 1996 og seinna þar sem Bjartur verður meðal þátttakanda. Foreldrar er kvattir til að taka þátt í leiknum með börnunum.
11.00-15.00: Skátafélagið Landvættir býður upp á barnagæslu í fjallinu gegn vægu gjaldi. Fulltrúar Landvætta munu vera með ýmsar uppákomur fyrir börnin og tryggja að þeim leiðist ekki á meðan foreldrarnir taka létta spretti í brekkunum.
13.00-15.00: Boðið verður upp á einkakennslu fyrir byrjendur á brettum og skíðum gegn gjaldi. Nánari upplýsingar í Brekkuseli.
17.00: DJ Pétur spilar uppáhaldslögin sín svo að undir tekur í brekkunum.
19.00: Brettabrun, keppt verður í samhliða bruni með útsláttarfyrirkomulagi. Skráning í Brekkuseli til kl. 15.00. ATH ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina verður uppi allan daginn!!!
Sunnudagurinn 31. mars - Páskadagur
Opnunartími: 10:00-17:00
11.00-15.00: Skátafélagið Landvættir býður upp á barnagæslu í fjallinu gegn vægu gjaldi. Fulltrúar Landvætta munu vera með ýmsar uppákomur fyrir börnin og tryggja að þeim leiðist ekki á meðan foreldrarnir taka létta spretti í brekkunum.
12.00: Páskaeggjamót fyrir börn fædd 1994 og yngri. Keppt verður í samhliðasvigi með útsláttarfyrirkomulagi. Allir keppendur fá páskaegg að keppni lokinni.
13.00-15.00: Boðið verður upp á einkakennslu fyrir byrjendur á skíðum gegn gjaldi. Nánari upplýsingar í Brekkuseli.
14.00: Kaffihlaðborð í Brekkuseli í umsjón Foreldrafélags yngri barna. Verð 700 kr. fyrir fullorðna og 350 kr. fyrir 6-12 ára börn, frítt fyrir 5 ára og yngri.
Mánudagurinn 1. apríl - annar í Páskadagu
11.00: Firmakeppni Skíðafélags Dalvíkur. Keppendur eru vinsamlegast beðnir að mæta kl. 10:30. Keppt verður í samhliða svigi með forgjöf og útsláttarfyrirkomulagi. Öllum heimil þátttaka.
Athugð að hópar geta fengið lyftur opnaðar alla páskana utan hefðbundins opnunartíma gegn greiðslu og gefa starfsmenn svæðisins upplýsingar. Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma 466-1010.
Upplýsingasími Skíðasvæðisins er 878-1606
Heimasíða skíðafélags Dalvíkur: www.skidalvik.is
Heimasíða Dalvíkurbyggðar. www.dalvik.is