Páskaeggjamót og kaffisala.

Á morgun Páskadag verður skíðasvæðið opið frá kl. 10:00-17:00 Kl.10:00 er samhliðasvig fyrir 2-5. bekk og er páskaegg í verðlaun fyrir hvern aldursflokk. Kl.12.00 hefst síðan páskaeggjamót fyrir börn fædd 2002 og yngri. Allir keppendur fá páskaegg að keppni lokinni. Kl.14.00 hefst kaffihlaðborð í Brekkuseli í umsjón Foreldrafélags yngri barna. Verð 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 6-12 ára börn, frítt fyrir 5 ára og yngri.