Samherji styrkir barna og unglingastarf Skíðafélags Dalvíkur um eina miljón.

Í dag veitti Samherji Skíðafélagi Dalvíkur einnar miljón króna styrk í barna og unglingastarf félagsins. Styrkurinn er félaginu mjög mikilvægur og verður hann meðal annars notaður til þess að greiða niður æfingagjöld barna og unglinga eins og undanfarin ár. Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins afhenti styrki til ýmissa samfélagsverkefna í samkomu sem fram fór í nýrri og glæsilegri aðstöðu Útgerðarfélags Akureyringa. Skíðafélag Dalvíkur þakkar Samherja fyrir þennan raustnarlega styrk og færir þeim bestu þakkir fyrir. Stjórn Skíðafélags Dalvíkur.