Skíðadiskó - föstudagskvöldið 12. janúar

Skíðadiskó fyrir unga jafnt sem aldna verður haldið í Brekkuseli föstudaginn 12. janúar n.k. kl. 20-22. Frítt verður í lyfturnar og boðið verður upp á kakó og kringlur. Við hvetjum alla til að mæta og skemmta sér saman á skíðum í dúndrandi tónlist.