17.03.2008
Svæðið verður opið frá kl. 10:00 til 17:00 frá miðvikudeginum 19. mars til mánudagsins 24. mars. Miðvikudagskvöldið 19. mars verður stígasleðakvöld frá kl. 20:00 til 22:00 en slík kvöld hafa verið afar vinsæl hér á skíðasvæðinu, kvöldið kostar 400 krónur. Kvöld opnun verður síðan laugardagskvöldið 22. mars frá kl. 20:00 til 23:00 og kostar lyftupassinn það kvöld 500 krónur.
Á páskadag kl.11:00 verður páskaeggjamót fyrir 1 bekk og yngri og eftir hádegi verður foreldrafélagið með kaffihlaðborð og hefst það kl. 13:00 og stendur það til kl. 16:00.