Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli.

Tvær lyftur samtals 1200 metra langar. Fallhæð er um 322 metrar. Neðri lyftan er að gerðinni Leitner og er 700 metra löng og sú efri er Doopermayer 500 metra löng. Á svæðinu er einn snjótroðari sem sinnir daglegri troðslu á svæðinu. Annar er til taks á álagstímum. Ný lýsing er á svæðinu. Á neðra svæðinu er hún endurbætt en á efra svæðinu hefur ekki verið lýsing áður. Samtals lýstar 1200 metra langar brekkur. Við erum mjög sveigjanleg með opnunartíma þegar hópar eru hjá okkur og opnum svæðið utan hefðbundins tíma sé þess óskað. Skíðaleiga er á staðnum og eru skíði og skór frá barnastærðum upp í fullorðinsstærðir. Hægt er að fá skíðakennslu um helgar og er kennd 1 klst í senn gegn gjaldi. Upplýsingar um svæðið fæst hjá starfsmönnum þess á opnunartíma í símum 466-1010 og 466-1005. Umsjónamaður svæðisins er Einar Hjörleifsson í síma 898 3347. Upplýsingasími svæðisins er 878 1606. Gott göngusvæði er í nágrenni skíðasvæðisins og fjölmargar gönguleiðir út frá því . Gönguhringur er troðinn daglega ef aðstæður leyfa. Hringurinn er um 2 km langur og liggur um hólana umhverfis Brekkusel, sem er skáli félagsins, og niður að Sundlaug Dalvíkur sem er í um 500 metra fjarlægð frá skíðasvæðinu. Aðstaða fyrir brettafólk er góð, landslagið mjög fjölbreitt og stutt að fara fyrir þá sem vilja ganga á fjöll.