05.12.2007
Nú eru aðstæður á skíðasvæðinu orðnar ágætar og ákveðið hefur verið að opna svæðið fyrir almenning. Síðustu vikur hefur verið framleiddur snjór þegar aðstæður hafa verið fyrir hendi en eins og áður hefur komið fram er það Samherji sem býður upp á fyrsta skíðasnjóinn á skíðasvæðinu á Dalvík. Það hefur því verið ákveðið að hafa frítt á skíði frá miðvikudeginum 5. Desember sem er í dag og fram á laugardag í boði Samherja. Almenn sala lyftukorta hefst því ekki fyrr en á sunnudag. Verið er að vinna í að gera efri lyftuna klára og stefnt er að því að að opna hana á laugardaginn.
Nánari upplýsingar um opnunartíma eru á símsvara svæðisins, 8781606 og hér á skidalvik.is