Skíðasvæðið opnar á ný

Eins og fram kom í fréttatilkynningu Skíðafélags Dalvíkur mánudaginn 3.apríl sl. var ákveðið að loka skíðasvæðinu tímabundið. Nú hefur verið ákveðið að stefna á að opna skíðasvæðið á ný mánudaginn 10.apríl. Nánari upplýsingar verða settar inn á skidalvik.is sunnudaginn 9. apríl. Þessi áform miðast við að aðstæður og snjóalög verði í lagi. Stjórn Skíðafélags Dalvíkur