Skíðavertíðin að hefjast

Við stefnum að því að opna skíðasvæðið okkar um helgina. Opið á föstudag kl. 17-20 og 11-15 laugardag og sunnudag. Sala vetrarkorta er hafin og nú býðst félagsmönnum í Skíðafélagi Dalvíkur að kaupa vetrarkortið á 20 þúsund en almennt verð er 25 þúsund krónur. Öll börn í Dalvíkurbyggð sem eru á grunnskólaaldri fá frítt vetrarkort á skíði í boði Skíðafélagsins þennan veturinn en þau verða að eiga key-card til að vista lyftukortið á. Þeir sem ekki eiga slíkt kort geta keypt það í Brekkuseli og kostar 1000 kr.