12.12.2012
Þá er komið að fyrstu skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæði Dalvíkur, Hlíðarfjalli, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða.
Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar sem gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna.
Þetta er fyrsta skiptuhelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.