Skiptihelgi á Dalvík, Hlíðarfjalli og á Siglufirði

Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu á Dalvík, Hlíðarfjalli og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrst skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.