Skiptihelgi á Dalvík, Hlíðarfjalli og á Siglufirði

Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu á Dalvík, Hlíðarfjalli og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina, 26-27 mars. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta er önnur skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur. Þriðja skiptihelgin verður auglýst síðar.