Skiptihelgi um helgina

Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu á Dalvík, Hlíðarfjalli, Siglufirði og Tindastól geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur