Svig drengja og stórsvig stúlkna á morgun

Á morgun sunnudag keppa drengir í svigi og stúlkur í stórsvigi. Keppni hefst kl. 9 og er áætlað að henni ljúki um kl. 13:30. Mótið fer fram í almenningsbrekkunum og því verður þröngt um þá sem myndu vilja renna sér í brekkunum á sama tíma. Við viljum því benda þeim á sem ætla að koma á skíði að kl. 14:00 verða allar brautir farnar úr brekkunum.