04.03.2015
Dagana 6 og 7 mars n.k fara fram Topolino leikarnir í Folgaria á Ítalíu. Mótið er eitt af sterkustu alþjóðlegu unglinga skíðamótunum sem fram fara í flokkum U16 og U14. Margir af sterkustu skíðamönnum heimsins hafa gert garðinn frægan á þessu móti sem nú er haldið í 54 skiptið. SKÍ sendir 10 þátttakendur á leikanna í ár. Þau eru Fríða Kristín Jónsdóttir og Katla Björg Dagbjartsdóttir SKA.
Axel Reyr Rúnarsson, Bríet Brá Bjarnadóttir, Guðfinna Eir Þorleifsdóttir og Helgi Halldórsson DAL.
Georg Fannar Þórðarson og Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir Víkingur.
Arnar Ágúst Kristjánsson Árm mann
Aron Steinn Halldórsson Stafdal
Hópurinn kom til Folgaria á sunnudaginn og hefur æft við frábærar aðstæður mán - fimmtudags. Allir kátir og hressir og tilbúnir til keppni um komandi helgi.