31.10.2015
Skíðafélag Dalvíkur hefur fengið veðurstöð að gjöf frá Kötlu og Sportferðum og hefur stöðin verið sett upp í fjallinu. Langþráður draumur hefur því orðið að veruleika og nú er hægt að skoða veðrið á skíðasvæðinu með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Á næstu dögum kemur síðan hlekkur beint inn á stöðina hér til hægri. Stöðin sýnir vindhraða, vindátt og hita en einnig er hægt að sjá mesta vind og hæstu og lægstu hitatölur á hverjum sólarhring. Þá sýnir stöðin rakastig, úrkomu (regn) loftþrýsting og vindkælingu. Efst á myndinni með veðurlýsingunni eru síðan hlekkir með nánari upplýsingum um stöðina. Undir map má til dæmis sjá allar veðurstöðvar á landinu af þessari tegund.
Skíðafélag Dalvíkur þakkar Kötlu og Sportferður fyrir þessa frábæru gjöf sem gerir skíða- og veðuráhugafólki kleift að fylgjast með veðrinu hér á Dalvík allt árið um kring.
[link="http://www.weatherlink.com/user/skidalvik/index.php?view=main&headers=1."]Veðurstöð[/link]