- skíðasvæði Dalvíkur
- Félagið
- Iðkendur
- English
- Jónsmót
Æfingar munu fara fram eins og æfingatafla segir til um. Ísí hefur gefið út tilmæli þar sem æfingar miðast við 20 einstaklinga og að hópar skarast ekki fyrir og eftir æfingar. Við eigum auðvelt með að sníða okkur að þeim tilmælum, enda nóg pláss í fjallinu.
Hreyfing og útivera er mikilvæg og mælist Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna til þess að haldið sé úti æfingum barna og unglinga ef hægt er að fara eftir tilmælum Ísí.
Við viljum því biðla til foreldra að fara yfir nokkra punkta með börnunum varðandi æfingar hjá Skíðafélagi Dalvíkur þannig að saman náum við að framfylgja þessum fyrirmælum Ísí.
Ekki vera að óþörfu inni í Brekkuseli, komum södd og sæl á æfingar.
Ef við þurfum að nota salerni inni í Brekkuseli, þá þvoum við okkur vel með sápu og notum spritt.
Höldum bili í lifturöð.
Sækjum börnin þegar þau hafa lokið skíðadeginum.
Ef breytingar verða á fyrirkomulagi þá verðar þær kynntar rækilega á facebook-síðu foreldra (foreldrar skíðabarna í Dalvíkurbyggð) og á heimasíðunni okkar (www.skidalvik.is)
Með kveðju
Þjálfarar Ski-Dalvík.
Brekkusel | 620 Dalvik Kt: 4903810319 |
Hægt er að hafa samband við svæðisstjóra
|
Skíðasvæði Dalvíkur s: 466-1010 email: skidalvik@skidalvik.is tv