13.05.2016
Mánudaginn 16 Maí verður haldinn vinnudagur á skíðasvæði Dalvíkur
Helstu verkefni sem að liggja fyrir eru:
Taka hengi af lyftum, bæði efri og neðri
Mála stafna á Brekkuseli
Ganga frá skíðaleigu
Þrífa Brekkusel og ganga frá því fyrir sumarið
og margt fleira sem þarf að ganga frá og klára fyrir sumarið
Við byrjum daginn klukkan 09:00 þá mætum við og fáum okkur morgunverð og hefjumst svo handa við vinnuna
klukkan 13:00 verður boðið uppá súpu og brauð og svo verður unnið eitthvað framm eftir degi
til þess að hægt sé að áætla matarkaup væri gott að fá að vita hverjir mæta, annað hvort á facebook eða á snator01@gmail.com